Íslenskir vinnuveitendur Litháanna í gæsluvarðhald

Brynjar Gauti

Litháar, sem eru í haldi vegna rannsóknar á mansalsmáli, störfuðu hjá verktakafyrirtæki hér á landi og hafa íslenskir eigendur þess verið úrskurðaðir í vikulanga einangrunarvist. Annar Íslendinganna á að hafa hringt í lögreglu fyrir starfsmenn sína til að spyrjast fyrir um litháíska stúlku, sem talið er að hafi átt að neyða í vændi á Íslandi. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert