Ekki er tekið á eignarhaldi á fjölmiðlum í nýju fjölmiðlafrumvarpi sem kynnt var þingflokkum í dag. Eignarhald á fjölmiðlum var eitt helsta deilumál fjölmiðlafrumvarpsins sem forseti neitaði að skrifa undir árið 2004. Sérstakri nefnd er falið að fjalla um málið en hún á að skila á niðurstöðum í vor.