Hagdeild ASí spáir því að landsframleiðsla dragist saman um ríflega 8% í ár en botninum verði náð á fyrsta ársfjórðungi næsta árs og efnahagslífið fari þá að rísa að nýju. Þetta kemur fram í nýrri hagspá sem kynnt verður á ársfundi ASÍ sem er að hefjast í Reykjavík.
Í spánni segir að verði ekki af stóriðjuframkvæmdum eða einkaframkvæmdum hafi það veruleg áhrif á niðurstöður spárinnar. Þannig gæti hagvöxtur minnkað um 5 prósentustig á spátímanum ef ekki verður af byggingu álvers í Helguvík og stækkun í Straumsvík.
Í síðustu spá hagdeildar ASÍ, sem birt var í júní, var því spáð að landsframleiðsla myndi dragast saman um 10,2% á þessu ári og 1,1% á árinu 2010.
Samkvæmt spá hagdeildar ASÍ verður atvinnuástandið hvað verst á árunum 2010 og 2011 eða yfir 10% á næsta ári og 9,2% 2011. „Það er því mikilvægt að ráðast í bráðaðgerðir sem taka með skjótum hætti á vandanum – en sem jafnframt geta lagt grunn að öflugum hagvexti til lengri tíma. Einkum hljótum við að horfa til mannaflsfrekra framkvæmda, hvort heldur er á vegum hins opinbera eða tengdar stóriðju. Dragist það þar til efnahagslífið fer að rétta úr kútnum er hætta á að við förum fljótt úr slaka í ofþenslu. Þá er stutt í að við endurtökum hagstjórnarmistök fortíðarinnar," segir í hagspánni.