Lenging greiðslujöfnunar að jafnaði 3 ár

mbl.is/Heddi

Þak á greiðslujöfnun lána, lánafrysting, upplýsingagjöf lánveitenda til lánþega og myntkörfulán eru meðal þeirra atriða sem tekið er á í nýju frumvarpi um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja sem samþykkt var á Alþingi í dag.

Með hinu nýja frumvarpi hafa orðið breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstakling. Breytingarnar eru svohljóðandi:

Þak á greiðslujöfnun lána – lenging vegna greiðslujöfnunar verður að hámarki 3 ár

Nýmæli lagabreytinganna felst í því að sett er þak á greiðslujöfnun fasteignaveðlána þannig að lán lengjast að hámarki um þrjú ár vegna greiðslujöfnunar umfram gildandi lánasamning. Þetta á jafnt við um verðtryggð fasteignaveðlán og fasteignaveðlán í erlendri mynt. Ef einhverjar eftirstöðvar eru af láninu að þeim tíma liðnum falla þær niður.

Sjálfkrafa greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember næstkomandi

Lagabreytingin felur einnig í sér að öll verðtryggð fasteignaveðlán sem eru í skilum fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember nema lántaki sæki sérstaklega um að svo verði ekki. Tilkynning um það þarf að berast viðkomandi lánveitanda eigi síðar en 20. nóvember. Bent skal á að þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Áætlað er að með greiðslujöfnun verði greiðslubyrði af láni í desember um 17% lægri en ella. 

Lán í vanskilum

Sjálfvirk greiðslujöfnun nær einungis til verðtryggðra fasteignaveðlána sem eru í skilum. Ef lán er í vanskilum er því eindregið beint til lántaka að setja sig í samband við lánveitanda sinn og leita samninga um leiðir til að koma láninu í skil. Þegar lán er komið í skil getur viðkomandi fengið greiðslujöfnun á lánið.

Lán í frystingu

Allmargir einstaklingar eru með lán sín í frystingu til ákveðins tíma. Þessi lán verða sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun þegar frystingin rennur út og þarf því ekki að sækja um það sérstaklega. 

Upplýsingagjöf lánveitenda til viðskiptavina fyrir 15. nóvember

Bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir og Íbúðalánasjóður munu fyrir 15. nóvember senda bréf til viðskiptavina sinna vegna lána sem fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun með nánari upplýsingum um greiðslujöfnunina og áhrif hennar á greiðslubyrði lána. Viðskiptavinir geta einnig á næstu dögum nálgast almennar upplýsingar um greiðslujöfnun á heimasíðum þessara stofnana og á vefsíðunni Island.is

Að segja sig frá greiðslujöfnun

Þeir sem ekki kjósa greiðslujöfnun þurfa að tilkynna það lánveitanda sínum fyrir 20. nóvember vegna gjalddaga í desember og er viðskiptavinum bent á að leita sér upplýsinga um form slikrar tilkynningar á heimasíðum þeirra og í netbönkum eða hafa beint samband við viðkomandi lánastofnun.

Þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast eigi síðar en 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Þeir sem hafa sagt sig frá greiðslujöfnun en sjá síðar að þeir kunni að hafa hag af henni, t.d. vegna breyttra aðstæðna geta sótt um að fá greiðslujöfnun.

Greiðslujöfnun fasteignaveðlána í erlendri mynt, bílalána og bílasamninga

Einstaklingar með fasteignaveðlán í erlendri mynt eiga einnig kost á greiðslujöfnun en um það þarf að sækja sérstaklega. Greiðslujöfnun þessara lána byggist ekki á lagaákvæðum heldur á samkomulagi við hlutaðeigandi aðila sem veita slík lán. Sama máli gegnir um bílalán og bílasamninga. Samkomulag um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í erlendri mynt og samkomulag um greiðslujöfnun bílalána og bílasamninga verða undirrituð og kynnt á næstu dögum.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert