Mikil mildi er að ekki fór verr um hádegisbilið í dag, þegar ökumaður missti stjórn á fólksbíl nærri Víkurhverfi í Mýrdal. Bíllinn hafnaði á hvolfi ofan í skurði, en að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli sluppu þeir sem voru í bílnum lítið sem ekkert meiddir úr óhappinu. Málið er nú í rannsókn en tildrög slyssins eru ókunn enn.