Fjármálaeftirlitið hefur vísað máli vegna láns sem Byr sparisjóður veitti eignarhaldsfélaginu Exeter Holding í október og desember 2008 til sérstaks saksóknara, en félagið var í meirihlutaeigu Ágústs Sindra Karlssonar lögmanns.
Grunur leikur á að um umboðssvik hafi verið að ræða, en þau varða allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar.
Málið snýst um 1,1 milljarðs króna lán sem Byr veitti Exeter Holding í tveimur hlutum, í október og desember 2008, eftir bankahrunið, til þess að kaupa 1,8 prósenta stofnfjárhlut í Byr á yfirverði, en ekkert hefur verið greitt af láninu.
Nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.