Hið íslenzka tófuvinafélag krefst þess að hagsmuna félagsins verði gætt í tengslum við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og lausn Icesave-málsins. Í því felst að í sérhverju aðildarríki ESB verði sérstökum tófugörðum komið upp, þar sem íslenska fjallarefnum gefist tækifæri til að kynbæta hina hnignandi stofna Evrópurefsins.
Jafnframt gerir félagið það að ófrávíkjanlegri kröfu að skuggabaldrar tilheyri um eilífð íslensku þjóðinni en skoffín megi flytja til Brussel óheft til hagsbóta fyrir gjörvallt Evrópusambandið.
Hið íslenzka tófuvinafélag var stofnað árið 1977. Stjórn þess skipa samkvæmt lögum: Sigurður Hjartarson forseti,
Þorsteinn Jónsson ritari, Grétar Jónsson gjaldkeri og endurskoðandi og Árni Hjartarson útbreiðslustjóri og tengiliður við bændur.