Beinar uppsagnir á Landspítala gætu orðið 70-100 að sögn Björns Zoëga forstjóra. Hann telur að sparnaðaraðgerðir sem hófust í september s.l. muni skila rúmlega 1,5 milljarði í sparnaði og aðrar aðgerðir nærri 1,7 milljarði til viðbótar. Alls mun þetta leiða til fækkunar sem nemur 170-200 störfum.
Þetta kemur m.a. fram í föstudagspistli Björns frá síðasta föstudegi. Þar segir m.a.:
„Fyrsta skoðun okkar á fjárhagsáætlun næsta árs sýnir að þær aðgerðir sem við hófum nú í september síðastliðinn munu skila okkur rúmlega 1,5 milljarði í sparnaði. Frekari breytingar í þjónustu og samdráttur, m.a. í sumarafleysingum, yfirvinnu, lokun ákveðinna deilda og breytingar á störfum munu skila okkur nálægt 1,7 milljarði til viðbótar.
Við höldum að þetta muni leiða til fækkunar sem nemur 170 - 200 störfum en vonum að ekki þurfi að segja upp öllum þessum fjölda. Með því að nýta okkur starfsmannaveltu spítalans ættu beinar uppsagnir að verða færri, eða á bilinu 70-100. Vinna við útfærslu á þessum tillögum stendur enn.“
Björn segir að framkvæmdastjórn Landspítalans vinni nú að áætlun um reksturinn miðað við fyrirliggjandi fjárlög. Í þeirri vinnu er hugað að verkefni spítalans í heild en ekki hver áhrifin verða á mismunandi stéttir.
Í pistlinum þakkar Björn einnig starfsfólki Landspítalans fyrir frábæra framgöngu í flensufaraldrinum.