Ágætis síldarlóðningar hafa fundist innarlega á Breiðafirði síðustu daga. Síldin hefur bæði verið stór og feit.
Á síðustu vertíð kom upp sýking í síldarstofninum og er talið að þriðjungur hans hafi drepist. Búið er að taka sýni úr síldartorfunum og verða þau send til Hafrannsóknastofnunarinnar í dag. Niðurstöður um hvort síldin er ennþá sýkt ættu að liggja fyrir í vikulokin.