Það fréttist í gær að McDonald's-skyndibitakeðjan yrði ekki starfrækt mikið lengur hér á Íslandi. Trúlegast eru einhverjir sem fagna því en þeir Högni og Magnús mótmæla kröftuglega og hyggjast skrifa sjálfum Ronald McDonald bréf þar sem þeir óska þess að ákvörðunin verði dregin tilbaka.