Dómsmálaráðherra hætti við niðurskurð

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra er hvött til að hætta við fyrirhugaðan …
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra er hvött til að hætta við fyrirhugaðan niðurskurð. mbl.is/Ómar

Aðalfundur lögreglufélags Vestfjarða, sem var haldinn í Bolungarvík í gær, samþykkti ályktun þar sem dómsmálaráðherra er hvattur til að hætta við  fyrirhugaðan niðurskurð hjá lögreglu enda komi hann niður á öryggi lögreglumanna og  þjónustu við íbúa landsins.

Þá kallar fundurinn kallar eftir því að ekki verði ráðist í neinar breytingar nema að vel yfirveguðu og ígrunduðu máli sem og í samráði við  fulltrúa starfandi lögreglumanna í landinu.

„Fundurinn hvetur forystumenn sveitarfélaga til að standa vörð um núverandi fjölda starfsstöðva og lögreglumanna í landinu í fyrirhuguðum breytingum á lögregluembættum og standi þannig vörð um öryggi og hagsmuni íbúa sinna sveitarfélaga.

Fundurinn harmar þá  ákvörðun Ríkislögreglustjóra hefur tekið varðandi rafbyssur sem valdbeitingartæki, þ.e. að eingöngu að heimila sérsveitinni notkun á því.  Fundurinn óskar eftir útskýringum á því hvers vegna það er lagt til að þrautþjálfaðir og vel vopnum búnir lögreglumenn sérsveitar RLS verði búnir rafbyssu valdbeitingartækjum á meðan illa tækjum búnir lögreglumenn á landsbyggðinni, sem starfa einir, fjarri allri aðstoð, og þurfa oft á tímum að leysa  samskonar verkefni og sérsveit RLS verði án þessara tækja.

Að lokum skorar fundurinn á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að vera Íslands í Shengen verði endurskoðuð.  Að farin verði  svo kölluð  ,,breska leið“ að halda uppi vegabréfaeftirliti á landamærum landsins. Fundurinn bendir á í því sambandi að bæði Bretland og Írland eru utan Shengen-svæðis, en þessi lönd eru eyjur í Evrópu eins og Ísland, Þ.e. að þeir eru ekki með í 96. gr. samningsins og eru áfram með landamæraeftirlit en stefna að því að vera  í öllu öðru samstarfi lögreglu  í Evrópu, þ.e. upplýsingaöflun og upplýsingarsamvinnu,“ segir ennfremur í ályktuninni.  

Á fundinum var jafnframt kosin ný stjórn. Hana skipa: Gylfi Þór Gíslason, formaður og Hannes Leifsson, Haukur Árni Hermannsson, Jón Bjarni Geirsson og Skúli Berg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert