Fullur salur var á borgarafundi á Húsavík um atvinnuástandið og óvissuna um orkuvinnslu og stóriðju á svæðinu. Þingmenn Norðausturkjördæmis voru allflestir á fundinum en þeir hafa í dag átt fundi með sveitarstjórnarmönnum í Norðurþingi og víðar.
Fundurinn var í Borgarhólsskóla. Var uppsetningin svipuð og á borgarafundunum í Háskólabíói í vetur þar sem settir voru stólar upp á svið merktir þingmönnum með nafni.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is er talsverður hiti í íbúum á svæðinu og var fundinum meðal annars ætlað að gefa fólki tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum milliliðalaust til þingmanna, sem sátu fyrir svörum á fundinum. Meðal þeirra voru Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.