Dagpeningar á ferðalögum innanlands lækka um 15% samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar. Þannig lækka dagpeningar vegna gistingar og fæðis í einn sólarhring úr 22.132 krónum í 18.700 krónur.
Dagpeningar vegna gistingar í einn sólarhring verða 10.400 krónur, og lækkar um rúmlega 26%, fæði hvern heilan dag er 8300 krónur og lækkar um rúm 4% og fæði í hálfan dag 3150 krónur.