Sú breyting hefur verið gerð á útgáfu DV að blaðið kemur framvegis út á mánudögum í stað þriðjudaga. Eftir sem áður kemur blaðið út þrjá daga vikunnar; á mánudögum, miðvikudögum og helgarblað kemur út á föstudögum.
Í tilkynningu frá Birtíngi, útgáfufélagi blaðsins, segir að samhliða þessari tilfærslu verð blaðið stækkað og verði að lágmarki 32 síður. Þá verði íþróttaumfjöllun aukin.