Lögreglumenn í Reykjavík neituðu að handtaka konuna sem handtekin var í mansalsmálinu þar sem þeim þótti ástæðan ekki næg. “Við tökum ekki þátt í svona vitleysu” eiga þeir að hafa sagt. Því var send sveit frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður konunnar.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafnar alfarið þessum orðum lögmannsins og segir þvert á móti lögregluna á höfuðborgarsvæðinu hafa aðstoðað við handtökuna.