Þriðjungur ökumanna ók of hratt

Lögreglan fylgist vel með umferðinni.
Lögreglan fylgist vel með umferðinni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 76 ökumanna á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Egilsgötu. Á klukkutíma, eftir hádegi, fóru 197 ökutæki þessa akstursleið. Yfir þriðjungur ökumanna, eða 39%, ók því of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59. 

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg, en við götuna er Austurbæjarskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert