Villifénu, sem sótt var í Tálkna í Patreksfirði í vikunni, var í dag lógað í sláturhúsi KS á Sauðárkróki. Fram kemur á vefnum Feyki, að féð hafi flokkast ágætlega og lömbin séu vel hæf til manneldis.
Haft er eftir matsmönnum sláturhússins, að féð hafi verið í góðum holdum þrátt fyrir að vera háfætt og ekki sé um neina ræktun að ræða hjá þessum stofni.
Vignir Kjartansson verkstjóri sagði hins vegar að aðeins sæist mar á sumum skrokkunum sem er afleiðing af smöluninni í Tálkna en hún var nokkuð erfið. Vignir sagði ennfremur að féð hefði verið fast í gærunni og erfitt að flá það.
Slátrun villifjárins var lokapunktur sláturtíðar hjá Afurðastöð KS þetta haustið og eru margir af erlendu verkamönnunum sem störfuðu á sláturhúsinu í haust farnir að pakka saman og fljúga til síns heima á morgun.