Nýr bátur til Bolungarvíkur

Bolungarvíkurbáturinn Einar Hálfdáns ÍS á siglingu.
Bolungarvíkurbáturinn Einar Hálfdáns ÍS á siglingu.

Útgerðarfélagið Blakknes ehf á Bolungarvík fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.  Að útgerðinni stendur Guðmundur Einarsson, sem er skipstjóri og kunnur sjósóknari vestra. 

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Einar Hálfdáns ÍS-11. Báturinn er fimmtán brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.  Einar Hálfdáns er af gerðinni Cleopatra 38.
 
Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar og er einnig útbúinn með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða með línuspil og færaspil er frá Beiti. Öryggisbúnaður kemur frá Viking.
 
Rými er fyrir tólf 660 lítra kör í lest bátsins, þar sem er innangeng upphituð stakkageymsla.  Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta.  Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert