Ráðin aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

Lísa Kristjánsdóttir.
Lísa Kristjánsdóttir. mbl.is/Ómar

Lísa Kristjánsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra. Hún tók til starfa í heilbrigðisráðuneytinu í dag.

Fram kemur á vef ráðuneytisins að Lísa hafi um langt árabil starfað sem verkstjóri við gerð íslenskra kvikmynda, sinnt skrifstofustjórn og hafi undanfarið starfað sem viðburðarstjóri og almannatengill hjá bókaútgáfunni Bjarti og Veröld.

Lísa hefur tekið virkan þátt í stjórnmálum og var til dæmis kosningastjóri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir alþingiskosningarnar 2007 og 2009.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert