Stefán verður aðalsamningamaður

Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, t.v og Michael Leigh, yfirmaður stækkunarskrifstofu …
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, t.v og Michael Leigh, yfirmaður stækkunarskrifstofu Evrópusambandsins Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra hefur falið Stefáni Hauki Jóhannessyni, sendiherra, að vera aðalsamningamaður Íslands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins. Stefán Haukur hefur verið sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu í Brussel frá árinu 2005.

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er gert ráð fyrir að á næstu vikum eða mánuðum ljúki framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gerð álits síns um aðildarumsókn Íslands og að á grundvelli þess taki aðildarríkin ákvörðun um að hefja formlegar aðildarviðræður. Ætla megi að þær hefjist á fyrri helmingi næsta árs og muni aðalsamningamaður í umboði utanríkisráðherra stýra þeim fyrir hönd Íslands. Skipan formanna einstakra samningahópa og annarra fulltrúa í samninganefnd Íslands verður kynnt síðar í vikunni.

Stefán Haukur var fastafulltrúi Íslands gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), EFTA og stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Genf á árunum 2001 til 2005. Hann var skipaður formaður vinnuhóps WTO um aðild Rússlands árið 2003 og gegnir því starfi enn. Hann var formaður samningahóps WTO um markaðsaðgang fyrir iðnaðarvörur í Doha-lotunni frá 2004 til 2006, og formaður í þriggja manna gerðardómi WTO árin 2002 og 2003 vegna deilu milli Evrópusambandsins, Kína og fleiri ríkja við Bandaríkin sem snérist um viðskipti með stál. Þá hefur Stefán Haukur leitt fríverslunarviðræður af hálfu Íslands og EFTA við ýmis ríki.

Hann réðst til starfa í utanríkisráðuneytinu árið 1986 og tók þátt í rekstri EES-samningsins og annarri Evrópusamvinnu frá árinu 1993. Hann var skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins frá 1999 til 2001.

Stefán Haukur er fæddur í Vestmannaeyjum og er lögfræðingur að mennt. Hann er giftur Halldóru Hermannsdóttur og eiga þau þrjú börn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka