Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur fyrir hönd sjálfstæðismanna í viðskiptanefnd Alþingis óskað eftir fundi í nefndinni þar sem forsvarsmenn bankanna sitji fyrir svörum.
Guðlaugur vill fá upplýsingar um hvaða reglur gilda um skuldameðferð og aðkomu eigenda að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja sinna.