Skilanefnd ekki að taka yfir

Kim Kyung-Hoon

Toyota á Íslandi hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar á Stöð 2 í kvöld og vill koma því á framfæri að skilanefnd Landsbankans sé ekki við það taka yfir rekstur Toyota á Íslandi eins og greint var frá þar.

Er orðið „ekki“ undirstrikað í yfirlýsingunni en þar segir einnig:„Unnið hefur verið að því í samvinnu við skilanefndina að endurskipuleggja rekstur og fjárhag fyrirtækisins en aldrei hefur staðið til að Landsbankinn eða aðrar fjármálastofnanir taki yfir rekstur Toyota á Íslandi. Um þetta hefur ríkt gagnkvæmur skilningur milli Toyota og skilanefndar. „

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert