Yfir 30% samdráttur

Fasteignasala dróst saman um 10,5% á milli mánaða
Fasteignasala dróst saman um 10,5% á milli mánaða mbl.is/Ómar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2009 var 204. Heildarvelta nam 5,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 3,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 1,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 600 milljónum króna.

Kaupsamningum fækkaði um 10,5% á milli september og október

Þegar október 2009 er borinn saman við september 2009 fækkar kaupsamningum um 10,5% og velta minnkar um 4,6%. Í september 2009 var þinglýst 228 kaupsamningum, velta nam 6,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27,1 milljón króna.

Þegar október 2009 er borinn saman við október 2008 fækkar kaupsamningum um 34,6% og velta minnkar um 33,9%. Í október 2008 var þinglýst 312 kaupsamningum, velta nam 8,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,6 milljónir króna.

28,9% kaupsamninga eru makaskiptasamningar

Makaskiptasamningar voru 55 í október 2009 eða 28,9% af öllum samningum, að því er fram kemur á vef Fasteignaskrár Íslands. Í september 2009 voru makaskiptasamningar 75 eða 35,2% af öllum samningum. Í október 2008 voru makaskiptasamningar 54 eða 18,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign.

19 fasteignir seldar á Akureyri

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í október 2009 var 19. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 346 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 13 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 9 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 395 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 7 samningum þinglýst á Akranesi. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 126 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 15 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 10 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 376 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,1 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert