Farþegum til landsins fækkar

Samtals komu 633 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll fyrstu tíu mánuði ársins samanborið við 806 þúsund farþega í janúar–október 2008. Þetta er 21,4% samdráttur.

Að sögn Hagstofunnar komu 714 þúsund farþegar til landsins síðastliðna 12 mánuði, til loka október  og er það 22,6% samdráttur frá 12 mánuðum þar á undan.

Í október komu 52.868 farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll en í sama mánuði í fyrra voru farþegarnir 61.479 talsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert