Dagur B Eggertsson fær 160 þúsund krónur í laun fyrir hvern fund í Faxaflóahöfnum ef nota á reiknikúnstir minnihluta skipulagsráðs borgarinnar segir Guðmundur Gíslason, varaformaður stjórnar Faxaflóahafna. Dagur sagði sig úr stjórn Faxaflóahafna í gær og Björk Vilhelmsdóttir tók við. Dagur segir ekkert óeðlilegt við brotthvarf sitt úr stjórninni. Um eðlilega hrókeringu sé að ræða.