Á Suðurlandi er hálka á Bláfjallavegi og Nesjavallaleið. Á Vesturlandi eru vegir að mestu auðir, hálkublettir hafa þó myndast í Borgarfirði. Á Norðurlandi eru hálkublettir á Öxnadalsheiði og á Lágheiði.
Á Vestfjörðum er hálka á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði, Hálfdán, Kleifarheiði, Klettshálsi og á
Steingrímsfjarðarheiði. Hálkublettir eru í Djúpi og Arnkötludal.
Á Norðausturlandi er hálka og hálkublettir á flestum fjallvegum en autt við ströndina.
Á Austurlandi er víða hálka eða hálkublettir á heiðum, þó er þoka á Fjarðarheiði, að því er segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.