Skilanefnd Glitnis segir, að mál vegna 750 milljóna evra misræmis, sem kom fram við afstemmningu á bókhaldi Glitnis nýverið, sé til skoðunar hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte en ekki hjá fjármálarannsóknafyrirtækinu Kroll, enda sé ekkert sem bendir til á þessari stundu að misræmið tengist ólögmætum aðgerðum.
Þetta kemur fram í athugasemd, sem skilanefnd Glitnis hefur sent frá vegna frétta fjölmiðla síðustu daga um málið.
Athugasemdin er eftirfarandi:
Vegna frétta fjölmiðla síðustu daga um liðlega 750 milljóna evra misræmi sem fram kom við afstemmningu á bókhaldi Glitnis nýverið og sem greint var frá á fundi með kröfuhöfum í síðustu viku, vill skilanefnd Glitnis taka fram:
- Þetta mál er nú til skoðunar hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte en ekki hjá fjármálarannsóknafyrirtækinu Kroll, enda er ekkert sem bendir til á þessari stundu að misræmið tengist ólögmætum aðgerðum.
- Umrætt misræmi kom fram við afstemmningu á bókhaldi Glitnis við utanaðkomandi aðila, en sú vinna fer nú fram hjá Glitni og er liður í undirbúningi slitastjórnar og skilanefndar áður en tekin verður afstaða til krafna í bú Glitnis. Frestur til að lýsa kröfum í búið rennur út þann 26. nóvember næst komandi. Ekki er því um það að ræða að komið hafi í ljós ný krafa á hendur bankanum frá einhverjum einum aðila eins og ranglega hefur verið haldið fram í einstaka fjölmiðlum.
- Skilanefnd Glitnis mun greina frá niðurstöðu Deloitte um leið og hún liggur fyrir.
Fh. skilanefndar Glitnis
Árni Tómasson