Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarráðherra, fer fram á fullnægjandi skýringar af hálfu forsvarsmanna Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, vegna heimsóknar fjármálastjóra samtakanna á næturklúbbi í Sviss. „Við viljum fá það á hreint hvernig þetta geti hreinlega gerst,“ segir Katrín í samtali við DV. Mun Katrín senda KSÍ formlegt erindi síðar í dag.
Pálmi Jónsson, fjármálastjóri KSÍ, sagði í Morgunblaðinu á laugardag að fjórir menn hafi játað að hafa misnotað kreditkort hans á næturklúbbi í Sviss, hann hafi fengið endurgreiðslu og því telji hann að mannorð sitt hafi verið hreinsað.Þetta kemur fram í yfirlýsingu Pálma til Morgunblaðsins um málið. Þar rifjar hann upp að í nóvember 2005 hafi tvö kreditkort í hans umsjón verið gróflega misnotuð og honum gert að greiða 3,2 milljónir króna. Hann hafi greitt reikningana en kært misnotkunina. Í mars á þessu ári hafi hann fengið bréf frá saksóknaraembættinu í Zürich, þar sem fram hafi komið að einn maður hefði játað sök í málinu og væri tilbúinn að endurgreiða það sem honum bar vegna misnotkunar. Í júlí sl. sumar hefðu þrír menn til viðbótar játað sök og sagst tilbúnir að endurgreiða það sem þeim bar ef ákæra gegn þeim yrði látin falla niður.