Lögreglan í Reykjavík handtók laust eftir kl. 23 tvo karlmenn á fertugsaldri í Vatnagörðum. Annar mannanna var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fannst nokkurt magn af þýfi, aðallega farsímar og staðsetningartæki. Mennirnir tveir eru enn í varðhaldi og verða yfirheyrðir í dag.