Styttist í Þjóðfundinn

Búist er við nokkrum erlendum blaðamönnum hingað til lands í tengslum við Þjóðfundinn sem fram fer á laugardag. Alls hafa 1.120 manns staðfest komu sína  í Laugardalshöll þar sem fundurinn fer fram.

Til fundarins er stefnt marktæku úrtaki þjóðarinnar, alls 1.500 manns. Samkvæmt skráningunum var yngsti fundarmaðurinn 17 ára en sá elsti 88 ára. Ríkisstjórn og ríflega 70 fyrirtæki, sveitarfélög, félagasamatök, stofnanir og einstaklingar eru í hópi stuðningsaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert