Umferðin svipuð og 2007

Umferðin jókst töluvert í sumar enda ferðuðust Íslendingar innanlands þetta …
Umferðin jókst töluvert í sumar enda ferðuðust Íslendingar innanlands þetta árið mbl.is/Ómar Óskarsson

Akstur á 16 völdum talningarstöðum á hringveginum í október 2009 er örlítið meiri en í október í fyrra. Fyrstu tíu mánuði ársins hefur umferð aukist um 2,3 prósent miðað við sama tímabil 2008. Umferðin er þó nánast sú sama og 2007. Töluverð aukning varð á umferðinni í sumar en í haust hefur dregið úr henni á ný.

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að enn og aftur er höfuðborgarsvæðið eina landssvæðið þar sem akstur hefur dregist saman frá áramótum en Vesturland stendur nánast í stað. Á milli októbermánaða eykst aksturinn mest á Norðurlandi en mest á Austurlandi frá áramótum.

Í heild hefur akstur aukist um 0,2% á milli október mánaða en 2,3% frá áramótum. Á sama tíma í fyrra dróst aksturinn saman um 2,2% frá áramótum sem þýðir að miðað við stöðuna núna þá hefur samdráttur milli áranna 2007 og 2008 gengið til baka og 0,1% betur.

Ekki má mikið út af bregða til að annað árið í röð verði um samdrátt að ræða sem yrði þá í fyrsta sinn í sögu þessara mælinga að samdráttur mælist tvö ár í röð, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert