Skv. upplýsingum frá Landlæknisembættinu hafa 8.650 einstaklingar greinst með inflúensulík einkenni frá 29. júní til 8. nóvember sl. Þar af eru 3.942 karlar og 4.618 konur. Í síðustu viku greindust 797 einstaklingar skv. skráningu heilbrigðisþjónustunnar. Það eru töluvert færri en í vikunni á undan.
Fram kemur að tilfellum hafi bæði fækkað á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, að því er fram kemur á vef Landslæknisembættisins.
Enn greinast hlutfallslega fleiri börn í aldurshópnum 0–9 ára með inflúensulík einkenni, færri greinast í öðrum aldurshópum og eftir sextugt fækkar tilfellum verulega.
Þann 8. nóvember sl. höfðu alls 676 einstaklingar greinst með inflúensu A(H1N1)v á Íslandi sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 332 karlar og 344 konur. Í síðustu viku var sýkingin staðfest hjá 30 einstaklingum, sem eru færri en í vikunni á undan, en þá var sýkingin staðfest hjá 55 einstaklingum. Tilfelli hafa verið staðfest hjá fólki með búsetu í öllum sóttvarnaumdæmum.
Frá 23. september til 9.
nóvember 2009 hafa rúmlega 170 einstaklingar verið lagðir inn á
sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009.
Langflestir
hafa verið lagðir inn á Landspítala eða 133, þar af hafa alls 19
einstaklingar legið á gjörgæsludeild Landspítalans vegna inflúensu.
Þann 9. nóvember voru 31 sjúklingur innliggjandi með inflúensu á
Landspítala, þar af voru sjö á gjörgæslu.
Alls 20 einstaklingar hafa lagst inn á Sjúkrahúsið á Akureyri vegna inflúensu, þar af hefur einn legið á gjörgæsludeild.
Tíu manns hafa verið lagðir inn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og voru tveir inniliggjandi þar þann 9. nóvember sl.
Stöku innlagnir hafa orðið á öðrum heilbrigðisstofnunum, þar af voru tveir á sjúkrahúsinu í Vestamanneyjum og á Neskaupstað og einn á Blönduósi, Selfossi og Egilstöðum.