Olíuskip tilkynnti ekki um ferðir sínar

Skipið Urals Star.
Skipið Urals Star.

Olíuskipið Urals Star er nú á siglingu undan Suðausturlandi með 106 þúsund tonn af hráolíu innanborðs. Skipið stefnir 12 mílur suður af Dyrhólaey en tilkynnti ekki siglingu sína innan hafsvæðisins eins og lög og reglur gera ráð fyrir, að sögn Landhelgisgæslunnar.

Að sögn Landhelgisgæslunnar er skipið á leið frá Murmansk í Rússlandi til austurstrandar Bandaríkjanna með olíu til hreinsunar. Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar samband við skipið kl. 15:10 í dag. Var skipið þá um 22 sjómílur suðaustur af Hrollaugseyjum.

Var skipstjóri upplýstur um óskir Íslands um að öll skip á leið um lögsöguna upplýsi um ferðir sýnar, ekki síst skip af þessari stærð og með slíkan farm.  Skipstjóra virtist ekki vera kunnugt um reglur þessar en vinnur nú í senda  nauðsynlegar upplýsingar. 

Olíuskipið Urals Star er um 115.000 brúttótonn, 254 metrar að lengd og 44 metrar að breidd, með 106.000 tonn af hráolíu innanborðs. Landhelgisgæslan segir, að grannt sé fylgst með skipinu í eftirlitsbúnaði stjórnstöðvarinnar enda afar viðkvæmur farmur um borð sem myndi valda miklum skaða ef eitthvað færi úrskeiðis.

Segir Landhelgisgæslan, að breytt heimsmynd ásamt hlýnun loftslags á norðurslóðum hafi gert það að verkum að umferð flutninga- og farþegaskipa á Norður Atlantshafi hafi aukist mikið. Stærð þessara skipa fari sífellt vaxandi og því sé nauðsynlegt að vera viðbúin óhöppum sem geta orðið á íslenska hafsvæðinu. Smíði varðskipsins Þórs sé liður í þeim viðbúnaði enda þurfi mikinn togkraft til að geta aðstoðað stór olíu- og flutningaskip sem lenda í óhöppum.  Þór er með 120 tonna togkraft sem sem er tvöfalt meiri en togkraftur en íslensku varðskipanna Ægis og Týs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert