Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, sagði á Alþingi í dag að bregðast verði við þeim vanda, sem blasi við dómstólum landsins vegna mikillar fjölgunar mála. Ragna nefndi m.a. að ákærumálum frá embætti ríkissaksóknara hefði fjölgað um 80% á síðustu tveimur árum og einnig mætti búast við fjölda mála frá sérstökum saksóknara.
Þetta kom fram í umræðu utan dagskrár um vanda dómstóla sem fór fram að ósk Ólafar Nordal, þingmanns Sjálfstæðisflokks. Í umræðunni sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, m.a. að það kunni að hafa verið mistök að gera 10% hagræðingarkröfu til lögreglu, dómstóla og fangelsismála.
Ragna vitnaði til bréfs, sem Hæstiréttur sendi dómsmálaráðuneytinu í október þar sem fram kom, að ekki sé unnt að mæta sparnaðarkröfu þessa árs og næsta nema með því að skerða verulega starfshæfni réttarins. Fjárveitingar til réttarins hafi lengi verið mjög naumar og nú þurfi að fækka aðstoðar- og skrifstofumönnum um fjórðung til að bregðast við sparnaðarkröfunni.
Á sama tíma hafi málum hjá Hæstarétti fjölgað mikið. Þau hafi verið um 500 á árunum 2002 til 2004 en voru nærri 700 á árunum 2006 til 2008. Fjölguninni hafi einkum verið mætt með aukinni vinnu dómara. Nú blasi við að málum muni fjölga til muna vegna bankahrunsins. Búast megi við fjölda deilumála vegna uppgjörs á þrotabúum föllnu bankanna og gjaldþrotaskipta margra fyrirtækja. Sum þessara mála verði væntanlega mjög umfangsmikil.
Einnig sé ljóst að látið verði reyna á gildi neyðarlaganna og þau mál verði hvorki einföld né smá í sniðum. Loks megi búast við fjölda sakamála tengdum bankahruninu. Óskar Hæstiréttur eftir því að fjárveiting til réttarins verði hækkuð um 16 milljónir.
Í bréfi dómstólaráðs til ráðuneytisins, sem Ragna vitnaði til, kom einnig fram að fyrirsjáanleg sé veruleg aukning mála. Þegar sé málafjöldi hjá héraðsdómum Reykjavíkur og Reykjaness í sögulegu hámarki. Þingfestum einkamálum hafi fjölgað um 32% milli ára og fjöldi ágreiningsmála í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna gjaldþrota hefur þrefaldast milli áranna 2008 og 2009 og sé stóraukning þeirra mála fyrirsjáanleg. Þá sé mikill fjöldi riftunarmála þrotabúa í farvatninu og á fjórða hundrað greiðsluaðlögunarmál hafa bæst við störf dómstóla.
Dómstólaráð leggur til að héraðsdómurum verði fjölgað tímabundið um fimm og löglærðum aðstoðarmönnum sömuleiðis um fimm. Ragna sagðist hafa tekið undir þessa tillögu og að einnig verði orðið við beiðni Hæstaréttar um aukna fjárveitingu, sem verði mætt með hækkun dómsmálagjalda. Þau gjöld hefðu ekki hækkað frá því þau voru tekin upp árið 1991 og Íslendingar væru eftirbátar annarra þjóða varðandi þau gjöld.
Ragna sagði einnig mikilvægt að huga að lagaheimildum fyrir dómstóla til að kveðja til meðdómendum. Jafnvel yrði búinn til listi yfir sérfræðinga, sem gætu komið íslenska ríkinu til aðstoðar, bæði í dómsstörfum og hagsmunagæslu.
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að þau bréf, sem Ragna vitnaði til, væru ekkert annað en neyðarkall frá dómskerfinu og við því væri nauðsynlegt að bregðast.