Kostur, ný matvöruverslun opnar í Kópavogi á morgun. Jón Gerald Sullenberger eigandi segist ætla koma þjóðinni á óvart.
Kostur, ný lágverðsverslun eða brettabúð í eigu Jóns Geralds Sullenberger og fimm annarra einstaklinga, verður opnuð í Kópavogi á morgun, nánar tiltekið við Dalveg 10-14, þar sem InnX innréttingar voru áður til húsa.