Neytendastofa hefur bannað Olíuverslun Íslands og N1 að auglýsa fimm króna afslátt af dæluverði eldsneytis handa viðskiptakorthöfum sínum. Neytendastofa segir, að í tilboðinu felist að veittur er þriggja króna afsláttur af dæluverði og söfnun punkta að verðmæti tveggja króna, Safnkortspunkta hjá N1 og vildarpunkta Icelandair hjá Olíuverslun Íslands.
Með ákvörðunum Neytendastofu hefur stofnunin bannað auglýsingar fyrirtækjanna. Segist stofnunin telja, að söfnun fríðinda geti ekki verið lagða til jafns við afslátt í krónum og því geti fyrirtækin ekki auglýst fimm króna afslátt af verði þegar dæluverð lækki eingöngu um þrjár krónur en viðskiptavinurinn safni punktum að verðmæti tveggja króna að auki.
Neytendastofa bannaði því auglýsingarnar þar sem þær eru villandi og til þess fallnar að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti.