Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir, að engar skuldir félagsins hafi verið afskrifaðar og ekki standi til að afskrifa neinar skuldir á Haga. Hagar séu þvert á móti eina fyrirtæki landsins sem hafi á s.l. 18 mánuðum greitt upp að fullu með vöxtum skráðan skuldabréfaflokk, sem var meginhluti skulda félagsins. Hagar séu nú vel fjármagnað félag til langs tíma.
Nú sé unnið að lausn á skuldum eignarhaldsfélagsins 1998, eiganda Haga. Þar sé meginmarkmiðið að ekki komi til neinna afskrifta skulda, m.a. með því að erlendir fjárfestar leggi fram verulega fjármuni til félagsins í formi nýs hlutafjár. Umfjöllun eða fullyrðingar um annað séu einfaldlega rangar.
„Líta verður á umfangsmikla umfjöllun Morgunblaðsins undanfarnar vikur, sem einstaka í sögu blaðamennsku. Sú umfjöllun verður ekki skilin öðruvísi en sem aðför að Högum og því starfsfólki sem þar starfar. Megininntakið í málflutningi blaðsins er að nauðsynlegt sé að Bónus starfi í framtíðinni án Jóhannesar í Bónus. Blaðið heldur því fram að hagsmunum félagsins sé best borgið með brotthvarfi stofnandans og frumkvöðulsins Jóhannesar í Bónus. Þessu er ég, sem forstjóri Haga með öllu ósammála og deili ég þar skoðunum með stjórnendum og starfsfólki Haga," segir Finnur í yfirlýsingunni.