Réðust tveir á einn

Héraðsdómur Norðurlands eystra.
Héraðsdómur Norðurlands eystra. mbl.is/Skapti

Tveir unglingar, 17 og 18 ára gamlir, hafa verið dæmdir í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi hvor fyrir að ráðast á yngri pilt í ágúst í sumar og slá hann ítrekað í andlitið og sparka í hann þar sem hann lá á jörðinni. Meðal annars brotnuðu þrjár framtennur í piltinum sem varð fyrir árásinni og hann fékk áverka á andlitið.

Piltarnir tveir voru einnig dæmdir til að greiða drengnum sem þeir réðust á samtals 133.800 krónur í bætur.

Svo virðist sem eldri piltarnir tveir hafi talið sig eiga eitthvað sökótt við þann yngri vegna þess að hann hafi skemmt bíl. Í dómnum kemur einnig fram, að árásarmennirnir sendu yngri drengnum textaskilaboð af msn spjallrás og sagðist hann hafa orðið fyrir áfalli vegna þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert