Brotist var inn í verslunina Þín verslun í Vesturbergi í Breiðholti í nótt. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var rúða brotin, en ekki liggur fyrir hvort einhverju hafi verið stolið. Málið er í rannsókn.
Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir á Reykjavík í nótt fyrir að aka undir áhrifum áfengis. Einn þeirra var jafnframt sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
Að sögn varðstjóra var næturvaktin nokkuð hefðbundin og erill því í meðallagi.