Lögreglan á Selfossi handtók í síðustu viku karlmann í Þorlákshöfn. Maðurinn var þar að leita að öðrum manni, sem hafði borið vitni fyrir dómi í máli sem hinn handtekni hafði verið dæmdur í daginn áður.
Lögreglan segir, að í ljós hafi komið, að maðurinn var á bíl þrátt fyrir að vera sviptur ökuréttindum og talinn vera undir áhrifum fíkniefna. Eftir að hafa dvalið í fangageymslu í nokkurn tíma var maðurinn yfirheyrður og í beinu framhaldi leiddur fyrir dómara þar sem lögreglustjórinn á Selfossi hafði gert kröfu um að maðurinn yrði látinn sæta nálgunarbanni gagnvart vitninu. Dómari féllst á þá kröfu.
Ákæra mun síðar verða gefin út á hendur manninum vegna þessara þriggja brota en það verður ekki fyrr niðurstaða blóðrannsóknar liggur fyrir.