Síldin erfið viðureignar

Faxi að veiðum á laugardag
Faxi að veiðum á laugardag mbl.is/Símon Sturluson

Faxi RE er nú á síldveiðum í Breiðafirði og að sögn skipstjórans, Alberts Sveinssonar, er síldin erfið viðureignar. Skipið fór til veiða sl. fimmtudagskvöld og í gær var Faxi kominn með um 950 tonna afla. Stefnt er að því að ná fullfermi eða rúmlega 1500 tonnum en Albert segir að það ætli að reynast erfiðara en hann átti von á.

Aðstæður hafa verið vægast sagt leiðinlegar. Hér hefur verið strekkingur allan tímann og vindurinn stendur á land. Síldin heldur sig mjög nærri landi og hún gefur sig aðeins til eftir að það tekur að birta á morgnana og fram eftir degi en leið og það fer að skyggja þá dreifir hún sér og er óveiðanleg,“ segir Albert í samtali við vef HB Granda, en að hans sögn hefur hann verið með skipið að veiðum í nágrenni Stykkishólms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert