Lokið var við að sprengja næst síðustu sprenginguna í veghluta Bolungarvíkurganganna í gær. Eftir sprenginguna opnaðist á milli jarðgangahlutanna en ástæðuna má rekja til þess að mjög veik setlög í efri hluta stafns ganganna gáfu eftir.
Fram kemur á vefnum bb.is, að vegna öryggis starfsmanna, var ákveðið að ljúka við að sprengja það sem eftir var, styrkja loft og veggi svo ekki stafaði hætta á frekara hruni.
Framundan er frekari sprengivinna í síðasta útskoti ganganna ásamt bergstyrkingum svo hægt verði að bjóða gestum að skoða göngin á öruggan hátt þegar síðasta sprengihleðslan í verkinu verður sprengd og þessum stóra áfanga fagnað þann 28. nóvember.