Karlmaður stal 400.000 kr. úri úr verslun við Laugaveg um kl. 15:50. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sparkaði maðurinn í barnshafandi afgreiðslustúlku þegar hann reyndi að komast út úr versluninni, sem honum tókst. Skv. upplýsingum mbl.is er búið að handtaka manninn.