Myndband sem sýnir frá veisluhöldum Baugs í Mónakó árið 2007 hefur verið tekið út af YouTube. Er það Sagafilm sem hefur látið taka myndbandið út en í tilkynningu á YouTube kemur fram að fyrirtækið er rétthafi myndbandsins.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli en í því sést Jón Ásgeir Jóhannesson m.a. spauga með grínurunum í Little Britain. Tina Turner syngja, Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auður Capital halda erindi, Skarphéðinn Berg og fleiri fyrrum forráðamenn hjá Baugi skemmta sér.
Hér var hægt að horfa á myndbandið áður en Sagafilm lét loka því