Samtökin Heimili og skóli sendu í dag frá sér tilkynningu til grunnskóla, þar sem varað var við því að á morgun sé búið að boða almennan dag þess þegar fólk sparkar í þá sem eru rauðhærðir. Á ensku kallast tilefnið „kick a ginger day“ og er auglýstur grimmt á samskiptavefnum Facebook.
„Heimili og skóli og framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar á Íslandi telja að með þessu háttalagi sé verið að hvetja til ofbeldis sem felur í sér niðurlægingu og virðingarleysi.
Við beinum þeim tilmælum til skólastjórnenda að vekja athygli foreldra og nemenda á því að skólinn muni ekki líða slíka háttsemi. Því mælumst við til þess að foreldrar og aðrir forráðamenn verði upplýstir í dag og gert grein fyrir hvernig skólinn muni bregðast við brotum af þessu tagi. Jafnframt verði nemendur hvattir til að taka afstöðu gegn slíku atferli, athygli vakin á gagnkvæmri virðingu og gildi þess að nemendur sýni hver öðrum tillitsemi,“ segir í tilkynningunni sem send var frá Heimili og skóla til grunnskólanna.