Vegir eru auðir á Suðurlandi og að mestu við Faxaflóa. Víða er hálka á heiðum, snjókoma á Öxnadalsheiði og éljagangur á Fjarðarheiði. Þungfært er í Fljótum og á Lágheiði og einnig norður í Árneshrepp. Varað er við hreindýrum á vegum austanlands.
Á Snæfellsnesi er hálka á Fróðárheiði en annars sumstaðar hálkublettir.
Eins eru sumstaðar hálkublettir í Dölum. Á Vestfjörðum er hálka á
Hrafnseyrarheiði og krapi á Þröskuldum en hálkublettir víðar.
Á Norðurlandi er víða hálka og hálkublettir.
Hálka eða snjóþekja er víða á Austurlandi. Hellisheiði eystri
er ófær. Hálka og éljagangur er á Fjarðarheiði og snjóþekja og
skafrenningur á Oddskarði. Fólk er beðið hafa vara á sér gagnvart
hreindýrum sem kunna að vera á vegum austanlands.