Endanleg útfærsla boðaðra skattabreytinga verður ekki að fullu ljós fyrr en frumvarp þar að lútandi verður lagt fram, að mati skattasérfræðings sem Morgunblaðið ræddi við. Til dæmis er eftir að útfæra hugmynd ríkisstjórnarinnar um jöfnun tekna milli hjóna eða sambýlisfólks hvað varðar skattheimtu.
Ljóst er að skatttekjur ríkissjóðs munu aukast um 50 milljarða en óvíst er um mörg önnur áhrif þessara breytinga. Greining Íslandsbanka telur að skattabreytingarnar muni leiða til um 1,3% hækkunar á vísitölu neysluverðs (VN) á fyrsta fjórðungi næsta árs. Þar af er hækkun virðisaukaskatts talin valda 0,9% hækkun á VN. Hækkun á vörugjöldum, orku-, umhverfis og auðlindasköttum leiði að auki til 0,4% hækkunar VN. Af skattbreytingunum muni því leiða 15-16 milljarða króna hækkun á höfuðstól íbúðalána landsmanna á komandi mánuðum.
Vaskurinn hækkar um 18.814 á mann á ári
Breytingar á virðisaukaskatti eiga að skila sex milljörðum í ríkissjóð. Virðisaukaskattur í efsta þrepi hækkar í 25% og tekið er upp nýtt 14% þrep. Í það flytjast ýmsir flokkar vöru og þjónustu sem borið hafa 7% virðisaukaskatt. Ef hækkuninni er deilt niður á alla landsmenn, sem voru 318.906 þann 1. október s.l., nemur hún 18.814 kr. á hvert mannsbarn. Hver fjögurra manna fjölskylda verður því að borga rúmlega 75 þúsund krónum meira í virðisaukaskatt á ári eftir hækkunina.Hótel- og veitingamenn samþykktu á fundi SAF í gær harðorð mótmæli við því misrétti sem fælist í tvöföldu kerfi virðisaukaskatts á matsölu. Þeir benda á að samkvæmt því kerfi sem nú á að taka upp fari það eftir starfsleyfi þess sem selur matinn hve háan virðisaukaskatt viðskiptavinurinn þarf að greiða. Sé veitingaleyfi á staðnum muni viðskiptavinurinn borga 14% virðisaukaskatt. Ef samskonar tilbúinn matur sé keyptur í verslun eða sjoppu verði greiddur 7% virðisaukaskattur. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skora á stjórnvöld að draga þessa tillögu til baka enda leiði flókið og óskiljanlegt skattkerfi til aukinnar svartrar atvinnustarfsemi. Þá ætlar SAF að leita til samkeppnisyfirvalda vegna þessa máls.
Fjármagnstekjuskattur hækkar um 80%
Í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að fjármagnstekjuskattur muni hækka úr 15% í 18% sem er 20% hækkun. Fjármagnstekjuskatturinn var hækkaður úr 10% í 15% þann 1. júlí síðastliðinn. Lögfræðingur sem rætt var við benti á að sú ráðstöfun hefði aðeins átt að vera til bráðabirgða. Því sé í raun verið að hækka fjármagnstekjuskattinn nú úr 10% í 18% eða um 80%.Viðmælandi taldi líklegt að hækkun fjármagnstekjuskattsins mundi leiða til hækkunar húsnæðiskostnaðar. Með þessu væri verið að hækka einn helsta kostnaðarlið þeirra og hækkuninni yrði væntanlega velt beint út í verðlagið.