Umferðarslys eru algengasta dánarorsök kvenna á aldrinum 17-26 ára. Eru umferðarslys tvöfalt algengari orsök en sjálfsvíg sem er næst algengasta orsökin.
Þetta kemur fram í samantekt Umferðarstofu þar sem stuðst er við upplýsinga frá Hagstofunni og tölur úr slysaskrá Umferðarstofu á 10 ára tímabili frá 1999 til 2008.
16 konur í umræddum aldurshópi létust í umferðarslysum á þessu tímabili en helmingi færri þ.e. 8 af völdum sjálfsvíga. Hjá ungum karlmönnum eru sjálfsvíg hinsvegar algengasta dánarorsök eða 71 tilfelli en umferðarslys koma þar næst á eftir í 45 tilfellum. Mun fleiri karlmenn eða 195 létu lífið í þessum aldurshópi en konurnar voru 61.
Þegar tölur um dánarmein beggja kynja á aldrinum 17 – 26 ára eru lagðar saman kemur í ljós að það eru mestar líkur á að ungt fólk deyi af völdum sjálfsvíga og umferðarslysa. Þegar eldri hópurinn, 27 – 36 ára, er skoðaður, kemur hinsvegar í ljós að mikil breyting á sér stað hvað varðar helstu dánarorsakir í samanburði við yngri hópinn. Þar er krabbamein orðið næst algengasta dánarmeinið en sjálfsvíg og vísvitandi sjálfsskaði eru enn algengustu dánarmeinin. Í eldri hópnum eru umferðarslys þriðja algengasta orsök.