Der Spiegel tekur Reykhóla fyrir

Myndin í Der Spiegel af þeim Svanhildi og Sólrúnu.
Myndin í Der Spiegel af þeim Svanhildi og Sólrúnu. Ljósmynd / Alva Gehrmann

Á ferðavef þýska vikuritsins Der Spiegel, einhvers þekktasta blaðs Þýskalands, birtist í gær ítarleg umfjöllun um heitar laugar á Vestfjarðakjálkanum og þing Vatnavina Vestfjarða á Laugarhóli í Bjarnarfirði.

Der Spiegel sendi blaðakonuna Ölvu Gehrmann til Vestfjarða og fylgja frásögn hennar margar myndir frá heitum laugum og ýmsum sundstöðum á kjálkanum. Ein þeirra er af Svanhildi Sigurðardóttur og Sólrúnu Sverrisdóttur á Reykhólum í heitum potti í garði Svanhildar, þar sem þær eru að smyrja sig þarablöndu.

„Á Reykhólum hefur virkni þörunga sem fegurðarelexírs verið uppgötvuð“, segir í samantektinni. Greint er frá áformum þeirra Svanhildar og Sólrúnar að koma upp þaraböðum á Reykhólum í samvinnu við Vatnavini, þar sem ferðafólk muni geta notið hinna góðu áhrifa slíkra baða. Fyrirsögn samantektarinnar er Baden mit Björk (Í bað með Björk) en söngkonan Björk Guðmundsdóttir er eflaust sá Íslendingur sem flestir Þjóðverjar þekkja. Fram kemur að hún sé sérstakur stuðningsmaður Vatnavina og að hún hafi um árabil beitt sér í umhverfisverndarmálum.

Greint er frá þessu á Reykhólavefnum.

Hér má sjá umfjöllun Der Spiegel

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert