Keyrði á ljósastaur

mbl.is/Július

Ökumaður grunaður um ölvun við akstur ók á ljósastaur við Skógarsel í Reykjavík í nótt. Hann bíður nú yfirheyrslu í fangageymslum lögreglunnar.

Tveir voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna í Hafnarfirði. Einnig var einn ökumaður tekinn í Kópavogi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert